Þjónusta við mótsgesti á Unglingalandsmóti UMFÍ - fundur í kvöld
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina 2014. Ákveðið hefur verið að boða til fundur með aðilum í veitinga,- hótel og gistirekstri. Verslunarrekstri, ferðaþjónustu og allri þjónustu sem tengst gæti Unglingalandsmóti UMFÍ. Fundurinn fer fram í kvöld, miðvikudaginn 12. mars, kl. 20:00 í Húsi Frítímans og eru aðilar sem tengjast þessum rekstri hvattir til að mæta á fundinn.
Unglingalandsmótið hefst á fimmtudegi og lýkur um miðnætti á sunnudagskvöldi. „Mikill mannfjöldi mun væntanlega koma til Sauðárkróks þessa daga og mannlífið verður iðandi frá morgni til kvölds. Það er mikilvægt að við tökum vel á móti gestum okkar og sýnum allar okkar bestu hliðar,“ segir auglýsingu í Sjónhorninu.
„Á fundinum munum við upplýsa um mótið sjálft, stærð þess og væntanlegan þátttökufjölda. Hugmyndir okkar varðandi þjónustu við mótsgesti ofl. ofl.,“ segir í auglýsingunni.