Þóranna Ósk Íslandsmeistari í hástökki

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fór fram í Reykjavík nú um helgina. Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir á Sauðárkróki varð Íslandsmeistari í hástökki kvenna, stökk 1.66 m, sem er hennar besti árangur.

Þóranna setti ný héraðsmet í flokkum 18-19 ára og 20-22 ára stúlkna. Jóhann Björn Sigurbjörnsson vann silfur í 60 metra hlaupi og Guðjón Ingimundarson silfur í 60 metra grindahlaupi. Úrslitin er að finna hér.

Fleiri fréttir