Þórarinn Eymundsson er knapi Skagfirðinga

Þórarinn Eymundsson.
Þórarinn Eymundsson.

Sameiginleg uppskeruhátíð hestamannafélagsins Skagfirðings og Hrossaræktarsambands Skagafjarðar var haldin í Ljósheimum sl. föstudagskvöld. Veitt voru verðlaun í hinum ýmsu flokkum.

Á Facebooksíðu Skagfirðings segir að Gísli Einarsson fréttamaður og hafi slegið á létta strengi og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur farið yfir árangur kynbótahrossa. Veglegar veitingar voru í boði og áttu Skagfirskir hestamenn góða kvöldstund saman.

Þá segir á síðunni að ekki verði á neinn hallað þótt sérstaklega sé minnst á Þórarinn Eymundsson en hann sópaði að sér verðlaunum þetta kvöld en hann var m.a. valinn knapi ársins í Skagafirði.

 

Verðlaunahafar kvöldsins hjá Skagfirðing.

Barnaflokkur - Júlía Kristín Pálsdóttir

Unglingaflokkur - Freydís Þóra Bergsdóttir

Ungmennaflokkur - Ásdís Ósk Elvarsdóttir

Íþróttaknapi ársins - Þórarinn Eymundsson

Gæðingaknapi ársins - Þórarinn Eymundsson

Kynbótaknapi ársins - Þórarinn Eymundsson

Knapi ársins - Þórarinn Eymundsson

Titilinn Hrossaræktarbú ársins í Skagafirði hlutu Þúfur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir