Þórarinn og Ísólfur jafnir með 37 stig – spennan magnast
Fimmgangskeppni KS-Deildarinnar fór fram sl. miðvikudagskvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Mikil spenna var fyrir þessari keppnisgrein þar sem fimmgangur býður oft uppá miklar sviptingar, segir í samantekt frá Meistaradeild Norðurlands. Mikið hafði rignt og aðstæður til upphitunar utandyra hafa eflaust verið mjög erfiðar fyrir knapa.
Eftir ágæta forkeppni leiddi Þórarinn Eymundsson en þar skammt á eftir var Ísólfur Líndal. Auk þeirra fóru beint í A-úrslit þeir Elvar E. Einarsson og Bjarni Jónasson.
Efst inní B-úrslit kom Mette Mannseth, þar á eftir Tryggvi Björnsson en einungis munaði þremur kommum á þeim. Hörður Óli kom þriðji inn, síðan Líney María og jafnir inní B-úrslitin urðu Sigvaldi Lárus og Viðar.
Mette Mannseth og Stjörnustæll gáfu strax tóninn eftir góða sýningu á tölti og fannst mörgum að þar hefði mátt muna meiru í næstu hesta og jafnvel á einkunnum fyrir stökk líka. Líney og Brattur fóru vel í gegnum þessi úrslit með gott fet og frábæra útfærslu á skeiði og sannaði Líney hæfileika sína á að útfæra fallega skeiðspretti.
Tryggvi komst vel frá sínu með hestinn Villanda og leysti verkefnið með sóma. Hörður Óli og Hreinn voru í fínu formi og þar á eftir komu Sigvaldi Lárus og Viðar Bragason. Allir keppendur í B-úrslitum sýndu góða reiðmennsku og skeiðsprettir voru áberandi góðir.
Það fór svo eins og í fjórganginum að þær Mette og Líney börðust um sæti í A-úrslitum þar sem Mette hafði betur í þetta skiptið. Hestur Mette Stjörnustæll er athyglisverður keppnishestur, hágengur, flott formaður og líklegur til afreka í framtíðinni.
Elvar hlaut Fjöðrina
Þá var komið að A-úrslitum. Þórarinn kom þar efstur inn og mátti sjá á kappanum að hann ætlaði sér stóra hluti. Þeyr er sennilega ekki auðveldasti hesturinn en jafnvígur á gangtegundir og reiðmennska Þórarins laðar fram bestu kosti hestsins og skilaði þeim alla leið í kvöld.
Mette og Stjörnustæll fóru í annað sætið, sýndu áfram gott tölt og batnaði skeiðið með hverjum spretti en samtals fóru þau átta skeiðspretti í kvöld sem heppnuðust allir. Sigurvegararnir frá því í fyrra Ísólfur og Sólbjartur urðu í þriðja sæti. Sólbjartur virkaði léttari og betri á tölti en áður og aðrar gangtegundir góðar.
Bjarni tefldi fram lítt reyndum keppnishesti Dyn frá Dalsmynni. Dynur er allra athygli verður, taktviss á tölti, hágengur og kemur vel fyrir - efnilegur fimmgangari. Elvar endaði fimmti á hryssunni Gátu sem hann fékk að láni hjá Bjarna. Gáta er kraftmikil rýmishryssa sem nýtur sín eflaust betur á stærra svæði en fyrir reiðmennsku kvöldsins hlaut Elvar viðurkenningu FT - Fjöðrina.
Mikil spenna er komin í einstaklingskeppni deildarinnar þar sem þeir eru efstir og jafnir Þórarinn og Ísólfur með 37 stig. Þar á eftir kemur Bjarni með 34 stig og Mette með 30. Það er því ljóst að ekkert verður gefið eftir í þeim greinum sem eftir eru.
Í liðakeppninni er sem stendur ekki eins mikil spenna, þar sem lið Hrímnis hefur tekið afgerandi forustu með 91 stig. Þar á eftir kemur laekjamot.is með 67,5 og í þriðja Draupnir/Þúfur með 66 stig.
/Meistaradeild Norðurlands - Svala Guðmundsdóttir