Þórdís Kolbrún og Vilhjálmur í Skagafirði á sunnudag

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Vilhjálmur Árnason, alþingismaður, verða gestir í morgunverðarkaffi hjá sjálfstæðismönnum í Skagafirði á morgun, sunnudaginn 18. nóvember.

Í tilkynningu segir að Þórdís Kolbrún muni þar ræða þau mál sem heyra undir hennar ráðuneyti og ríkisstjórnarsamstarfið almennt. Vilhjálmur mun hins vegar flytja erindi um samgöngumál undir yfirskriftinni „Það er til önnur leið“.

Fundurinn verður haldinn í sal heimavistar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) og hefst kl. 11.

Kaffi og bakkelsi verður á staðnum og allir velkomnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir