Þrettándagleði Heimis – Myndir
Karlakórinn Heimir í Skagafirði hélt sína árlegu þrettándagleði í Miðgarði í gærkvöldi. Húsfyllir var á tónleikunum og var efnisskráin fjölbreytt. Ari Jóhann Sigurðsson söng einsöng fyrir hlé en eftir hlé bættist kórnum liðsauki þar sem stórtenórinn Garðar Thor Cortes söng einsöng í nokkrum lögum.
Gunnar Sandholt kynnti dagskrána á gamansaman hátt. Hátíðarræðu kvöldsins flutti Bjarni Maronsson og hlaut góðar undirtektir, en hann henti góðlátlegt gaman að skagfirskri menningu og þá ekki síst kórnum og kórfélögum.
Þrettándagleði Heimis er einn af hápunktum ársins í starfi kórsins, sem hefur starfað óslitið hátt í 90 ár. Stjórnandi er Stefán R. Gíslason er og undirleikari er Thomas Higgerson.
Um það leyti sem blaðamaður Feykis yfirgaf staðinn eftir að hafa tekið myndir af tónleikunum var að hefjast dansleikur með hljómsveit Grétars Örvarsson og var ekki að sjá annað en góð stemming ríkti meðal þeirra gesta sem ætluðu að taka kvöldið alla leið.
.