Þrettándagleði Karlakórsins Heimis framundan
Nú styttist óðum í þrettándagleði Karlakórsins Heimis, en hún verður haldin í Miðgarði næstkomandi laugardag, 4. janúar kl. 20:30. Undirbúningur vegna tónleikanna er nú á lokametrunum að því er fram kemur á heimasíðu kórsins og „eru kórmenn búnir að læra texta og nótur og byrjaðir að pressa buxur, bursta skó og finna til sparitennurnar.“
Dagskráin verður fjölbreytt að venju, og samanstendur af lögum sem kórinn syngur einn og svo lögum þar sem einsöngvarar syngja með kórnum. Þeir eru ekki af verri endanum í þetta skiptið. Fyrstan skal nefna Ara Jóhann Sigurðsson, sem syngur með kórnum tvö lög á tónleikunum. Eftir hlé kemur Garðar Thor Cortez til liðs við kórinn og syngur með honum nokkur lög.
Eftir tónleikana mun svo hljómsveit Grétars Örvarssonar leika fyrir dansi fram eftir nóttu, og óhætt að lofa skemmtilegum dansleik. Forsala aðgöngumiða verðu í gangi fram að tónleikum, bæði í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki, og í KS Varmahlíð. Miðaverð á tónleikana er 4.000 kr., á tónleika og ball saman kostar 5.000 kr. og 2.000 kr. á ballið eitt og sér.