Þriðja Kormákshlaupið

Ungmennafélagið Kormákur gengst þessa dagana fyrir fjórum götuhlaupum. Þau fyrstu fóru fram á sumardaginn fyrsta og 1. maí. Þriðja hlaupið er áformað á morgun, uppstigningardag.

Keppt er í sex flokkum karla og kvenna. Keppt verður um þrenn verðlaun í hverjum flokki. Til að eiga möguleika á verðlaunum fyrir sæti þurfa keppendur að
taka þátt í þremur hlaupum af fjórum og ræður þá tími í þremur hlaupum röð keppenda. Allir þátttakendur fá viðurkenningu fyrir þátttöku.

Hlaupið verður frá Félagsheimilinu á Hvammstanga á uppstigningardag, 9. maí, kl. 11:00 og laugardaginn 17. maí kl. 11:00. Verðlaunaafhending fer fram að síðasta hlaupinu loknu.
Þátttakendur eru beðnir að mæta tímanlega til skráningar, en hlaupið er ætlað ungum sem öldnum.

Þeir sem hlaupa 800 m keppa um bikar sem gefinn var af Göngufélaginu Brynjólfi til minningar um Bjarka Heiðar Haraldsson. Skal keppandi taka þátt í a.m.k. 3 hlaupum af 4, en einstakur tími ræður úrslitum samkvæmt stigatölfu FRÍ.

Fleiri fréttir