Þriggja unglinga af Háholti leitað

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði leita nú þriggja unglingsdrengja er struku af meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði í gærkvöldi. Drengirnir fóru frá heimilinu um klukkan tíu í gærkvöldi en björgunarsveitir voru kallaðar út um eittleytið í nótt.

 

Lögð er áhersla á að leita í útihúsum við bæi og öðrum stöðum þar sem skjól er að finna en frekar leiðinlegt veður hefur verið á svæðinu í nótt, kalt og rigningarsuddi. Verið er að kalla út fleiri leitarmenn frá björgunarsveitum.

/Landsbjörg.is

Fleiri fréttir