Þrír meistaraflokksleikir og törnering um helgina

Það verður nóg um að vera í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki um helgina og körfuboltaþyrstir geta svalað þorsta sínum því þrír meistaraflokksleikir verða háðir auk fjölliðamóts hjá 7. flokki. Á föstudagskvöld tekur meistaraflokkur karla á móti Breiðabliki og hefst leikurinn kl 19:15. Liðin eru jöfn að stigum en Breiðablik lagði Höttur frá Egilsstöðum 80:72 meðan Tindastóll sigraði Augnablik sl. föstudagskvöld 98:60.

Meistaraflokkur kvenna mun leika tvo leiki um helgina, sá fyrri verður háður á laugardag kl 16:00 þegar stelpurnar í FSu á Selfossi mæta í Síkið. Síðari leikurinn verður gegn Laugdælum á sunnudag og hefst hann kl. 13:00. Tindastóll laut í lægra haldi fyrir Fjölni 89:64 í fyrsta leik um síðustu helgi líkt og FSu sem tapaði sínum leik gegn Stjörnunni 41:63. Laugdælir hafa enn ekki leikið í deildinni.

Fólk er hvatt til að mæta og styðja liðin til sigurs auk þess að mæta á törneringu 7.flokks og fylgjast með ungu og efnilegu körfuboltafólki.

Í gær var dregið í fyrstu umferð Poweradebikarsins hjá körlunum en alls eru 33 lið skráð til leiks. Tindastóll mætir þar annarrar deildar liði KV í útileik en það mun vera hin fræga lið Knattspyrnufélag Vesturbæjar. Leikið verður helgina 1.-3. nóvember.

Fleiri fréttir