Þrír Stólar semja

Þeir Ingvi Hrannar Ómarsson, Arnar Skúli Atlason og Björn Anton Guðmundsson skrifuðu á dögunum undir nýja samninga við knattspyrnudeild Tindastóls og sömdu þeir allir til tveggja ára.

Allir eru kapparnir Tindastólsmenn í húð og hár og stuðningsmönnum Stólanna að góðu kunnir. Ingvi Hrannar á 116 leiki og 38 mörk að baki fyrir félagið, Arnar Skúli  er tvítugur og var fastamaður í sameinuðu liði Tindastóls/Hvatar í sumar. Björn Anton er bráðefnilegur miðvörður fæddur 1993 en hann dvelur nú í Danmörku þar sem hann er við æfingar hjá danska liðinu Vejle í vikutíma. /ÓAB

Fleiri fréttir