Þröstur Leó Jóhannsson valinn Gatorade-leikmaður níundu umferðar
Tindastólsliðið er það heitasta núna í Iceland Express deildinni í körfubolta að margra mati og hefur unnið fjóra síðustu leiki sína enda leikmenn funheitir og sjálfstraustið eins og það gerist best. Aðra umferðina í röð fær Tindstælingur nafnbótina Gatorade-leikmaður en hana fær Þröstur Leó Jóhannsson að þessu sinni fyrir níundu umferð deildarinna.
Það er Karfan.is sem stendur að valinu en þar segir að Þröstur hafi farið mikinn í sigri Stólanna gegn Þór í Icelandic Glacial höllinni, jafnt í vörn og sókn. Með sigrinum náði Tindastóll að tylla sér í 9. sæti deildarinnar en liðið hefur unnið síðustu fjóra deildarleiki sína í röð og ekkert annað lið í deildinni á jafn langan sigurkafla í augnablikinu. Þröstur gerði 18 stig í leiknum gegn Þór þar sem 4 af 5 þristum rötuðu rétta leið og þá var hann einnig með 5 fráköst, 3 stoðsendingar og tvo stolna bolta en varnarhlutverkið var einnig í toppstandi þar sem hann pakkaði saman Mike Ringgold sem skoraði aðeins 4 stig í leiknum, eins og segir á Karfan.is.