Þrumufleygur Elvars tryggði Tindastólsmönnum rennblaut þrjú stig
Tindastólsmenn fengu hafnfirska Hauka í heimsókn á iðagrænan Sauðárkróksvöll í gærkvöldi. Leikurinn var mikilvægur báðum liðum; Tindastólsmenn reyna að skunda upp úr fallbaráttu en Haukar vildu tryggja stöðu sína við topp deildarinnar. Niðurstaðan að loknum fjörugum og ágætlega spiluðum leik var 2-1 fyrir Tindastól.
Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ágætar í gærkvöldi, hiti um 10 stig og fram að leik rigndi af og til. Þegar leið á leikinn fór hins vegar að rigna eins og helt væri úr bala og varla þurr þráður á áhorfendum að leik loknum. Hinn kraftmikli stuðningshópur Stólanna var mættur á pallana á ný og söng linnulítið leikinn á enda.
Jafnræði var með liðunum framan af leik en Steven Beattie kom heimamönnum yfir á 10. mínútu með laglegu skallamarki eftir aukaspyrnu utan af vinstri kanti sem Atli Arnarson tók. Eftir þetta féllu Tindastólsmenn aðeins aftar á völlinn og gestirnir reyndu að brjóta sterka vörn Stólanna á bak aftur. Aðeins fór um heimamenn þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum en þá flautaði góður dómari leiksins, Halldór Breiðfjörð Jóhannsson, þegar Guðmundur Sævarsson tók flugið í suðurátt í vítateig Tindastóls en fékk að launum að líta gula spjaldið fyrir leikræna tilburði. Sóknir Hauka þyngdust en heimamenn reyndu að sækja hratt á gestina. Á 38. mínútu jafnaði Hilmar Geir Eiðsson metin þegar hann fékk boltann inn fyrir vörn Stólanna og náði skoti sem Seb Furness náði ekki að koma sér fyrir og í markinu lá boltinn. Bæði lið fengu ágæt færi fram að hálfleik en allt kom fyrir ekki.
Seinni hálfleikur var spennandi og bæði liði áttu góða spretti. Fyrsta færið fékk Atli Ödda inni á miðjum vítateig Haukanna en Sigmar Ingi í markinu náði að koma boltanum yfir markið. Stólarnir áttu nokkra ágæta sénsa en Haukarnir voru meira með boltann án þess þó að skapa sér góð færi. Leikurinn virtist stefna í jafntefli en á 79. mínútu fékk Elvar Páll Sigurðsson boltann rétt framan við miðju, hann lék í átt að marki Hauka og lét síðan vaða með hægri af ríflega 25 metra færi. Sigmar Ingi kom hönskum í boltann en náði aðeins að þeyta honum í þverslána og niður í markið. Sennilega eitt fallegasta mark sem sést hefur á Sauðárkróksvelli síðan að Guðbrandur var upp á sitt besta. Eftir þetta lögðust Stólarnir í vörn og féllu ansi aftarlega. Haukar fengu eitt dauðafæri sem Seb varði vel en heimamenn börðust einbeittir fyrir þremur stigum og ekki annað að segja en að sigurinn hafi verið sætur í leikslok.
Lið Tindastóls lék í heildina vel. Fínir spilkaflar voru hjá liðinu og vörnin stóð sig frábærlega. Að öðrum ólöstuðum var Steven Beattie magnaður í gærkvöldi, barðist og elti hvern bolta sem færi gafst á. Þá er markvörðurinn Seb Furness gríðarlega mikilvægur liðinu, með góðan talanda og heldur mönnum á tánum.
Næsti leikur er á þriðjudaginn en þá verður spilað á Ísafirði. Laugardaginn þar á eftir kemur lið Leiknis úr Breiðholti í heimsókn á Krókinn.