Þungar áhyggjur af lágu afurðaverði

Sameiginleg ályktun sveitarstjórna Húnaþings vestra, Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda hefur nú verið send til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þingmanna Norðvesturkjördæmis, atvinnumálanefndar Alþingis, Bændasamtaka Íslands, Landssamtaka sauðfjárbænda, afurðastöðva landsins og á fjölmiðla.

Bent er m.a. á að líkt og í öðrum rekstri sé mikilvægt að sauðfjárbændur fái viðunandi verð fyrir sína vöru og hafi þannig forsendur til áætlanagerðar og ákvarðanatöku.

,,Sveitastjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps lýsa yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu afurðaverðs haustið 2020. Sauðfjárrækt er mikilvæg búgrein þessara sveitarfélaga og ein af forsendum búsetu í dreifbýli. Í þessum sveitarfélögum var rúmlega 21% framleiðslu lambakjöts árið 2019.

Á undanförnum árum hafa orðið ábúendaskipti á þó nokkrum bújörðum í sveitarfélögunum og yngra fólk með fjölskyldur tekið við. Þessar fjölskyldur efla samfélagið, styðja við þjónustu ásamt því að halda uppi atvinnustigi.

Líkt og í öðrum rekstri er mikilvægt að sauðfjárbændur fái viðunandi verð fyrir sína vöru og hafi þannig forsendur til áætlanagerðar og ákvarðanatöku. Því er skorað á afurðastöðvar að gefa út afurðaverð 2021 fyrir komandi áramót.

Samkvæmt samantekt Landssamtaka sauðfjárbænda var afurðaverð til íslenskra sauðfjárbænda á síðasta ári það lægsta sem finnst í Evrópu og miðað við nýbirtar verðskrár 2020 er vegið meðalverð 502 kr./kg. Hefði afurðaverð fylgt almennri verðlagsþróun frá 2014 ætti það að vera 690 kr./kg. Því vantar enn tæpar 200 kr./kg. upp á afurðastöðvaverð fylgi verðlagsþróun.

Í heimsfaraldri vegna COVID-19 fengu Íslendingar áminningu um mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu. Skapa þarf greininni stöðugleika í rekstri til lengri tíma og styðja á öflugan hátt við innlenda matvælaframleiðslu.“

„Öll viðbrögð við erindinu og sú aðstoð sem viðtakendur geta lagt málinu er þegin með þökkum,“ segir í tilkynningu sveitarfélaganna.

Fleiri fréttir