Þungar áhyggjur af slæmu ástandi malarvega

Ástand vega í Skagafirði var til umfjöllunar á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Svf. Skagafjarðar í gær og lýsti nefndin yfir þungum áhyggjum af slæmu ástandi malarvega í sveitarfélaginu. Nefndin telur brýnt að auka fjármagn til viðhalds þeirra.

Þá ályktaði nefndin einnig svo að það sé mikið öryggismál fyrir vegfarendur á Skagastrandarvegi nr. 74 að hann verði endurbyggður hið fyrsta frá Hringvegi að Höskuldsstöðum.

Jafnframt lagði nefndin til að Skagafjarðarvegur nr. 752 (frá Stekkjarholti að Jökulsá) Hegranesvegur nr. 764 og Ólafsfjarðarvegur nr. 82 (frá Ketilási að Molastöðum) yrðu sett í forgang hvað varðar bundið slitlag á tengivegi.

Skilgreindur sem tengivegur vegna ferðamannastraums

Samkvæmt fundargerð leggur nefndin áherslu á að Reykjastrandarvegur nr. 748 verði skilgreindur sem tengivegur að Reykjum sem fyrst í ljósi þeirrar miklu umferðar vegna atvinnusóknar og ferðamannastraums. Í kjölfarið verði hafinn undirbúningur að lagningu bundins slitlags á veginn.

Einnig að ný talning á umferð verði gerð á Ásavegi nr. 769 og Sæmundarhlíðarvegi nr. 762. og að Tindastólsvegur nr. 746 verði settur á fjárlög á ný.

„Uppbygging vegarins var á samgönguáætlun 2007 - 2010 og átti að verja til verksins 39 mkr á þeim tíma. Nefndin bendir á að vegur að skíðasvæðinu í Tindastóli sé sá eini á norðurlandi sem ekki hefur verið lagður bundnu slitlagi,“ segir í fundargerð nefndarinnar.

 

 

Fleiri fréttir