Þyngsta nautið í tíunda sinn frá Hamri

Aðalfundur Félags kúabænda Skagafirði var haldin á Kaffi Krók 28. febrúar síðastliðinn. Róbert Örn Jónsson frá Réttarholti var kjörinn nýr formaður félagsins á fundinum en hann gegndi áður starfi gjaldkera. Þrír nýir menn voru kosnir í stjórn; Bessi Vésteinsson frá Hofstaðaseli, Davíð Logi Jónsson frá Egg og Sævar Einarsson frá Hamri en fyrir var í stjórn Hrefna Hafsteinsdóttir frá Hóli í Sæmundarhlíð.

Rætt var um aðalfundinn við nýkjörinn formann félagsins í nýjasta tölublaði Feykis og um hvað er efst á baugi hjá félaginu. Í viðtalinu kom m.a. fram að veitt voru verðlaun á aðalfundinum en verðlaun fyrir þyngsta nautið úr Skagafirði, sem innlagt var í sláturhús á árinu 2013, fór í hlut kúabúsins á Hamri í Hegranesi en það vó 428,7 kg og fór í úrvalsflokk. Til gamans má geta er þetta í tíunda sinn sem þyngsta nautið hefur komið frá Hamri, en þetta var sjöunda árið í röð.

Eins voru þrjár afurðahæstu kýrnar verðlaunaðar eftir verðefnum, en það er metið út frá mjólkurmagni margfaldað með próteinprósentu/fituprósentu. Í fyrsta sæti var Krossa 333 frá Hamri en hún mjólkaði 10.401 kg. sem gaf 861 kg. verðefni. Í öðru sæti var Vigga 374 frá Egg og mjólkaði hún 9.282 kg. sem gaf 860 kg. verðefni og loks í því þriðja hafnaði Ausa 306 frá Garðakoti, mjólkaði  11.628 kg. sem gaf 858 kg. verðefni.

Á fundinum voru einnig veittar viðurkenningar vegna kúadóma. Í þetta skiptið voru það kýr úr árgangi 2008 og í fyrsta sæti var Lea 504 frá Reynistað með 290 stig, í öðru sæti var Grása 1019 frá Kúskerpi með 286 stig og í því þriðja var Vinda 314 frá Sólheimum Sæmundarhlíð með 285 stig.

 

 

Fleiri fréttir