Þytsfélagar á Fjórðungsmóti

Í gær var forkeppni í barna-, unglinga- og A-flokki gæðinga ásamt kynbótasýningum á Fjórðungsmótinu á Kaldármelum. Karítas Aradóttir og Gylmir frá Enni komust beint inn í A-úrslit í barnaflokki og voru í 7. sæti eftir forkeppnina, með einkunnina 8,21.

Í unglingaflokki á Þytur tvo fulltrúa í B-úrslitum, þau Helgu Rún Jóhannesdóttur og Viktor Jóhannes Kristófersson.
Í A-flokki á félagið þrjá fulltrúa í B-úrslitum, en það eru þau Álfrún frá Víðidalstungu II og Ísólfur Líndal Þórisson, Frabín frá Fornusöndum og Jóhann Magnússon og Eldfari frá Stóru-Ásgeirsá og Bjarni Jónasson.

Einnig er Þytsfélaginn Tryggvi Björnsson í B-úrslitum á hryssunni Þyrlu frá Eyri, en þau keppa fyrir Neista í Austur-Húnavatnssýslu.

Fleiri fréttir