Til heiðurs Árna Stef sextugum

Árnahlaup er einn af hápunktum skagfirskra lummudaga í ár. Hlaupið verður til heiðurs Árna Stefánssyni íþróttakennara við FNV sem er sextugur í ár. Að sögn Sigríðar Svavarsdóttur sem er í forsvari fyrir undirbúning hlaupsins, gengur undirbúningur mjög vel og það er að bætast við þátttöku í langa hlaupið. Hún segir erfitt að segja til um styttri hlaupin af því þar sé ekki forskráning, en hún hefur trú á góðri þátttöku. Sjónvarpsstöðin N4 var með viðtal við Árna og Sirrý í gær, sem skoða má hér.

Þrjár hlaupaleiðir verða í boði og því geta ungir sem aldnir verið með. Lengsta leiðin og jafnframt sú eina þar sem keppt er til verðlauna, er 17.6 km fjallahlaup um svokallaðar Kimbastaðagötur, en þessi leið var hlaupin á landsmóti 2004. Tímataka og aldursskipting er á þessari leið, það er 39 ára og yngri, 40-49 ára og 50 ára og eldri. Einnig er boðið upp á 2 km og 6 km hlaup. Ræst er í allar vegalengdir á íþróttavelli við sundlaug og þar verður einnig endað, með grilli og tilheyrandi.

Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu sætin í 17,6 km og einnig eru fjölmörg þátttökuverðlaun sem dregið verður um. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um hlaupið á hlaup.is og fésbókarsíðunni facebook.com/arnahlaup.

Fleiri fréttir