Til minningar um brosmilda og yndislega stúlku

Blóma- og gjafabúðin á Sauðárkróki veitti Trölla, unglingadeild Skagfirðingasveitar, veglega peningagjöf síðastliðinn föstudag í Sveinsbúð, húsakynnum björgunarsveitarinnar. Gjöfin var veitt í minningu eins félaga í Trölla, Önnu Jónu Sigurbjörnsdóttur, sem lést í bílslysi þann 12. janúar síðastliðinn.

Við afhendinguna sagði Brynhildur Sigtryggsdóttir, eigandi Blóma- og gjafabúðarinnar, að hún hafi orðið vör við mikinn samhug frá fólkinu í bænum vegna fráfalls Önnu Jónu en fjöldi fólks lagði leið sína í verslun hennar til að kaupa blóm og minningarkort.

Þegar Brynhildur, betur þekkt sem Binný, og Ómar eiginmaður hennar fengu  þá hugmynd að gefa minningargjöf í nafni Önnu Jónu kom unglingadeild Skagfirðingasveitar þeim til hugar, en gjöfin hljóðar upp á 170 þúsund krónur. Þökk sé þeim trausta viðskiptahóp sem Blóma- og gjafabúðin hefur var hægt að færa unglingadeildinni þessa minningargjöf en að sögn Binnýar hefði hún ekki getað orðið að veruleika án hans.

Fyrir hönd unglingadeildarinnar tóku Hólmfríður Sylvía, Elísabet Ýrr og Elvar Bjarki við gjöfinni. „Það er ekki algengt að unglingadeildum séu gefnar svona höfðinglegar gjafir,“ sagði Elvar Bjarki við tilefnið. Ætlunin er að koma henni til góðra nota, fjárfesta í einhverju sem mun nýtast deildinni og vera um leið til minningar um félaga þeirra. Með peningagjöfinni fylgdi skjöldur með mynd af Önnu Jónu og á hann var m.a. áletrað: „Minning um brosmilda og yndislega stúlku lifir í hjörtum okkar allra um ókomin ár.“

Fleiri fréttir