Til Svölu – nýtt lag Árna Gunnarssonar

Nýtt skagfirskt tónlistarvídeó er komið á netið en þar syngur Sandra Dögg Þorsteinsdóttir ljóð Einars Benediktssonar sem hann lauk þó endanlega ekki við en Árni Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður með meiru samdi lagið. Fúsi Ben leikur á gítar og Kristín Halla Bergsdóttir á fiðlu.

-Svala Einarsdóttir lést árið 1929 langt fyrir aldur fram. Skáldið Einar Ben. var þá aldraður maður og bugaður. Hann reyndi að yrkja erfiljóð um dóttur sína en það varð aldrei lengra en þetta eina erindi. Það var gefið út í kvæðasafni lögnu eftir lát Einars og skýrt "Við lát Svölu". Ég tek mér það leyfi að skýra það hér "Til Svölu", segir Árni um lagið.

http://www.youtube.com/watch?v=sdIac21VSps

Fleiri fréttir