Tillaga að breytingu á aðalskipulagi

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 liggur nú frammi í ráðhúsi sveitarfélagsins og á heimasíðu þess. Athugasemdir eða ábendingar við tillögunum skulu berast skriflega til byggingarfulltrúa eða í tölvupósti í síðasta lagi 29. apríl næstkomandi.

Um er að ræða aðrennslislögn og nýtt stöðvarhús Gönguskarðsárvirkjunar við Sauðárkrók og að landbúnaðarsvæði á hluta jarðarinnar Depla í Austur-Fljótum verði að verslunar- og þjónustusvæði. Einnig liggja frammi tillögur um deiliskipulag fyrir sömu staði. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.

 

Fleiri fréttir