Tillaga um endurheimt votlendis við Hofsós

Frá Hofsósi. Mynd/KSE
Frá Hofsósi. Mynd/KSE

Á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í dag var lagt fram bréf frá Björgvin Guðmundssyni, dagsett 20. maí 2015, þar sem hann leggur til að Landbúnaðarnefnd beiti sér fyrir því að mokað verði ofan í skurði í svonefndum flóa norðan við Hofsós, til að endurheimta votlendi og byggja upp fuglalíf. 

Í fundargerð segir að Landbúnaðarnefnd hafi vísað erindinu til Umhverfis- og samgöngunefndar á fundi sínum þann 20.11.2015. Nefndin þakkaði erindið og fól sviðstjóra að kanna eignarhald á landinu áður en erindið verður afgreitt.

Fleiri fréttir