Tilraunir með nýja sláttuvél
Jón Einar Kjartansson á Hlíðarenda í Óslandshlíð í Skagafirði festi nýlega kaup á sláttuvél. Slíkt er ekki í frásögu færandi, nema hvað vélin er dragtengd með „stálknosara“ og er því einkar heppileg í slátt á grænfóðri jafnt sem öðrum túnum. Sláttuvélin er af Leyli gerð sem er með nýju sláttuborði sem búið er að tilraunakeyra í Danmörku og Hollandi í 4 ár. Var vélin prufukeyrð á þriðjudaginn að viðstöddum nokkrum bændum og tveimur erlendum tæknimönnum frá Leyli og tveimur mönnum frá VB landbúnaði. Tókust tilraunir vel og lofa þær góðu um framhaldið.