Tindastóll áfram í bikarnum í yngri flokkum

Um helgina fóru fram tveir leikir hjá yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Unglingaflokkur karla átti heimaleik á laugardaginn gegn Val Reykjavík og 10. flokkur drengja léku gegn FSu á Selfossi á sunnudaginn. Það fór svo að Tindastóll hafði sigur í báðum leikjunum.

Leikirnir voru báðir hluti af bikarkeppninni svo Tindastóll heldur áfram keppni en hin liðið detta út.

Í fyrri leiknum sigraði unglingaflokkur Tindastóls Val 88-76 og 10.flokkur drengja vann yfirburðasigur á Selfyssingum 99-37. 

Fleiri fréttir