Tindastóll heimsækir Grindavík í kvöld
Leikmenn Tindastóls í körfunni ætla að gera usla í Grindavík í kvöld er þeir freistast til að krækja í sín fyrstu stig á móti heimamönnum þar í bæ í Express-deildinni í körfubolta. Á heimasíðu Tindastóls segir að allt sé gott að frétta af liðinu.
„Allir leikmenn eru leikfærir og hafa haft mikið að gera í vikunni að læra ný leikkerfi og nýjar varnarfærslur. Það verður því athyglisvert að sjá hvernig leikmenn koma stemmdir til leiks í Grindvík og takast á við þetta erfiða verkefni en þess má geta að snillingarnir á lengjunni hafa ekki mikla trú á að okkur takist að koma bátnum aftur á flot í þessum leik. Stuðullinn á að Grindavík sigri leikinn er 1.05 en 4.00 er stuðullinn á Tindastólssigur þannig að það er þónokkur peningur í boði fyrir þá sem hafa trú á Bárði og strákunum“, segir á Tindastóll.is.
Þá er vert að minnast á að leikurinn verður sýndur á Kaffi Krók og eru stuðningsmenn og konur hvattir til að mæta og sjá strákana vinna fyrsta leikinn í vetur.