Tindastóll-ÍR í kvöld
Í kvöld tekur Tindastóll á móti Breiðholtsliðinu ÍR í Express-deildinni í körfubolta þegar fimmta umferð fer fram. ÍR-ingar eru nú með 4 stig en Tindastóll hefur enn ekki náð að krækja í stig í vetur en því ætla þeir að breyta í kvöld. Liðið hefur tekið miklum breytingum með nýjum þjálfara og er kominn meiri hraði í leik þess. Það mun hjálpa þeim til að landa sigri í kvöld.
Á heimasíðu Tindastóls er skemmtilegur pistill um liðin og gengi þeirra í upphafi móts. Þar segir einnig að allir strákarnir verði með og hafa verið að bíða í ofvæni eftir að þessi leikur hefjist, eða alveg frá því að leikurinn var flautaður af á móti Snæfell sl. sunnudagskvöld. Það er því ekkert að því að gera þær kröfur á strákana að þeir vinni þennan leik og baráttan um sætið í úrslitakeppninni fari að hefjast fyrir alvöru.
Sjá pistilinn HÉR