Tindastóll – ÍR í kvöld
Tindastóll heimsækir ÍR-inga í Breiðholtið í kvöld og leika sinn 16. leik í Express deildinni í körfubolta. Liðin eru jöfn með 12 stig og sitja í 9. - 10. sæti deildarinnar. Ljóst er að mikil spenna er fyrir leiknum enda mikið í húfi.
Á heimasíðu Tindastóls segir að liðið muni væntanlega tefla fram sínu sterkasta liði í kvöld enda þeir Þröstur og Helgi Freyr sem meiddust í síðasta leik klárir í slaginn. Þá eru talin upp afrek liðanna þar sem ÍR hefur aðeins unnið einn leik eftir áramót og spilamennska verið upp og niður. Þeir voru t.d. gríðarlega óheppnir að vinna ekki Grindavík á dögunum á heimavelli eftir að hafa leitt leikinn í 39 mínútur. Á móti hafa þeir verið slakir á útivelli. Stólarnir hafa hins vegar unnið tvo af þremur útileikjum eftir áramót og koma vonandi grimmir til leiks í kvöld. Þó að bikarúrslitin séu næstu helgi þýðir ekkert að spara sig enda hver sigur dýrmætur, segir á tindastoll.is.
Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður leikurinn sýndur á Tindastóll-TV og sagði Óli Björn Stefánsson stuðningsfulltrúi félagsins að stuðningsmannafélagið hafi tekið Mælifell herfangi og sýnir leikinn þar. Allir hvattir til að mæta og hvetja liðið með hugarorkunni einni saman. Að sjálfsögðu mætir suðurherinn í Hellinn í Breiðholti og skapa þá stemningu sem þarf fyrir strákana okkar.