Tindastóll með tvö lið í m.fl.karla

Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls samþykkti á síðasta fundi sínum sl. sunnudag að stefna á það að senda "nýtt" lið til keppni í 3. deild í meistaraflokki karla sumarið 2012. Er þetta gert þar sem ekki verður starfræktur 2. flokkur á vegum félagsins.

Á vef Tindastóls segir að ekki séu allir leikmenn Tindastóls tilbúnir í það verkefni að leika í 1.deild en eins og allir vita náði sameiginlegt lið Tindastóls og Hvatar að komast upp í þá deild en mikill styrkleikamunur á þessum deildum.

Stjórn deildarinnar var á þeirri skoðun að finna verði verðugt verkefni fyrir þá einstaklinga sem ekki eru tilbúnir í 1.deildina og því var sú ákvörðun tekin að stefna á að senda lið til keppni í 3. deild.

Að öllum líkindum verður leikið undir merkjum Þryms, en Þrymur hélt úti liði í fjórðu deildinni sem þá hét og má segja að slagorðið sem notað var þá rætist en það var „Þrymur í þriðju deild“.

Tindastóll mun lána leikmenn í þetta verkefni með Þrym og getur því kallað á þá til baka ef þörf er á.  Með þessu fá leikmenn verðugt verkefni og alvöru leiki til að takast á við.

Sjá nánar á Tindastóll.is

Fleiri fréttir