Tindastóll nældi í eitt stig í Víkinni

Lið Tindastóls og Víkings áttust við í níundu umferð 1. deildar karla í gærkvöldi og var leikið í Víkinni. Víkingum hefur gengið ágætlega í sumar og voru fyrir leikinn í öðru sæti deildarinnar. Liðin skiptust á jafnan hlut og reyndust lokatölur 1-1.

Líkt og þegar liðin mættust í bikarkeppninni á dögunum var lið Víkings sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og hefði forysta þeirra geta verið meiri en 1-0 í hálfleik en það var Aron Elís Þrándarson sem gerði mark heimamanna á 34. mínútu þegar hann komst inn fyrir vörn Tindastóls og lagði boltann í hornið.

Donni lagði áherslu á það í hálfleik að Stólarnir væru rólegri á boltanum og héldu honum betur en leikmenn höfðu gert í fyrri hálfleik og það gekk eftir. Tindastólsmenn komu grimmir inn í síðari hálfleik og á 60. mínútu skoraði Elvar Páll Sigurðsson laglegt mark eftir fyrirgjöf frá Steven Beattie. Bæði lið sóttu eftir þetta en tókst ekki að skapa sér dauðafæri og niðurstaðan 1-1 sem fyrr segir.

Að níu umferðum loknum er lið Tindastóls í 10. sæti í 1. deildinni með 8 stig. Fyrir neðan eru Þróttur Reykjavík og Völsungur Húsavík. Stólarnir hafa aðeins unnið einn leik í deildinni í sumar og hafa nú gert þrjú jafntefli í röð. Það fást hins vegar fá stig fyrir jafnteflið og því alveg nauðsynlegt að fara að vinna leiki og reyna að þoka sér uppí miðjupakkann.

Næsti leikur Tindastóls er hér heima gegn Haukum föstudaginn 12. júlí.

Fleiri fréttir