Tindastóll sendir lið í 1.deild kvenna á komandi tímabili

Líkt og vonir stóðu til hefur stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls ákveðið að senda lið til leiks í 1.deild kvenna á komandi tímabili. Mikill undirbúningur hefur átt sér stað undanfarin ár og hefur verið stefnt að þátttöku kvennaliðs í meistaraflokki haustið 2013 um nokkurn tíma.

Kalli Jóns sem þjálfaði elstu stúlknaflokkana sl. vetur  er að flytja af svæðinu og því ljóst að ráða yrði nýjan þjálfara. Á næstu dögum verður gengið frá ráðningu Tane Spasev, 35 ára gömlum þjálfara frá Makedóníu. Sá hefur þó nokkra reynslu af þjálfun og var nú síðast aðstoðarlandsliðsþjálfari Sýrlands.

Tindastóll á margar efnilegar stúlkur til að taka þátt í þessu verðuga verkefni og verður spennandi að sjá þær spreyta sig í meistaraflokki. Stelpurnar eru flestar ungar að árum og verður liðið m.a. byggt á stúlkum úr 9. og 10. flokki, eldri stúlkum sem hafa verið að æfa og keppa undanfarin ár, auk eldri og reyndari leikmanna. Þar sem Tindastóll getur bætt við sig fleiri leikmönnum leita þeir nú að öflugum stúlkum  sem eru til í að taka þátt og verða að liði á komandi keppnistímabili.

Einnig leita þeir að fólki sem er til í að starfa í kringum liðið hjá stelpunum, koma að skipulagi þess og ýmsu sem til fellur, til þess að hægt verði að standa sem best að starfinu sem bíður stúlknanna í vetur.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu spennandi starfi, hvort heldur sem leikmaður eða til aðstoðar, geta haft samband við Hafdísi Einarsdóttur í síma 869-9245, eða sent e-mail á netfangið hafdiseinarsdottir@hotmail.com.

/HE

 

Fleiri fréttir