Tindastóll skrifar undir samninga við fimm leikmenn

Fimm ungir og efnilegir leikmenn skrifuðu undir samning við Tindastól í gær. Þeir eru Jóhann Ulriksen, Ágúst Friðjónsson, Jónas Aron Ólafsson, Pálmi Þórsson og Arnar Ólafsson og munu þeir leika með Mfl. karla í knattspyrnu í sumar. 

Jóhann og Ágúst eru á 18. aldursári, en þeir eru fæddir árið 1997. Pálmi og Arnar eru á 17. aldursári, fæddir árið 1998. Jónas Aron er yngstur, sem er á 16. aldursári og er fæddur árið 1999.

Tindastóll endurnýjaði samninga við leikmennina Ingvi Hrannar Ómarsson, Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson og Bjarni Smári Gíslason í síðustu viku, líkt og greint hefur verið frá á Feyki.is.

Fleiri fréttir