Tindastóll tapar fyrir Þór Akureyri

Deildarmeistararnir í Tindastól lögðu leið sína á Akureyri síðastliðinn föstudag til að keppa við Þór Akureyri. Leikurinn var jafn nánast allan tímann en Þórsararnir leiddu í hálfleik, 44-36. Strákarnir í Tindastól náðu að klóra í bakkann í þriðja leikhluta  og staðan fyrir lokafjórðunginn 70-67 en Þórsararnir voru sterkari í þeim fjórða og náðu að landa sigri, 93-88.

„Hjá okkar mönnum var Flake atkvæðamestur með 28 stig, Ingvi var baráttuglaður í leiknum og setti 14 stig, Helgi Rafn með 12 stig og 8 stoðsendingar, Helgi Freyr með 12 stig og aðrir minna,“ segir á heimsíðu Tindastóls.

Samkvæmt frétt Tindastóls fylgdu margir stuðningsmenn liðinu, líklega um 50 talsins. Nú er einn leikur eftir í deildinni, heimaleikur nk. föstudag, á móti Hetti. Allir eru hvattir til þess að mæta og styðja við bakið á strákunum og ekki síst til þess að sjá þá taka á móti deildarbikarnum.

Fleiri fréttir