Tindastóll/Hvöt sigur í Soccerademótinu -Myndband af leiknum
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir
08.02.2011
kl. 08.00
Lið Tindastóls/Hvatar sigraði Þór2 í Soccerademótinu á sunnudag með þremur mörkum gegn tveimur.
Leikurinn var leikinn í Boganum eins og aðrir leikir í þessu ágæta móti. Það var Árni Arnarson sem skoraði fyrsta mark okkar í leiknum og síðan setti Óskar Snær Vignisson annað. Það var síðan í uppbótartíma að Arnar Skúli tryggði liðinu þrjú stig. Myndband frá leiknum má skoða hér