Tindastólshraðlestin örugg á réttu spori

Þó Tindastólsrútan væri ekki alltaf inni á veginum á leiðinni á Akranes í gær þá létu leikmenn liðsins það ekkert á sig fá og unnu góðan sigur á Skagamönnum, 93-122. Þegar þrjár umferðir eru eftir í 1. deildinni eru Stólarnir í góðri stöðu efstir í deildinni en enn er þó ekki búið að gulltryggja sæti í úrvalsdeildinni.

Eins og oft áður í vetur í leikjum Tindastóls var jafnræði með liðunum fyrsta leikhlutann en í þetta skiptið voru heimamenn með frumkvæðið. Proctor sá til þess að Stólarnir voru með forystu, 23-24 að loknum leikhlutanum en Skagamenn byrjuðu annan leikhluta vel og voru komnir í 31-26 eftir eina mínútu. Þá snérist leikurinn gjörsamlega og á næstu rúmu fjórum mínútum gerðu Tindastólsmenn 22 stig en heimamenn 0. Staðan 31-48 og geim óver. Proctor gerði 11 stig á þessum kafla. Skagamenn klóruðu aðeins í bakkann og minnkuðu muninn mest í níu stig en Stólarnir gáfu ekkert eftir og Pétur Birgis setti niður fyrstu af fimm 3ja stiga körfum sínum í leiknum með síðustu körfu fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik 48-63.

Pétur tók í 3ja stiga gikkinn strax í byrjun þriðja leikhluta og stuttu síðar bætti Ingvi Rafn öðru við og Tindastóll með 22 stiga forystu. Munurinn á liðunum var yfirleitt þetta 15-20 stig út leikhlutann og staðan 71-89 að honum loknum. Zachary Warren var atkvæðamikill hjá heimamönnum í upphafi fjórða leikhluta, en kappinn gerði 38 stig í leiknum og þar af 21 stig úr 3ja stigum skotum. Pétur Birgis gerði hins vegar tvær 3ja stiga körfur á hálfri mínútu og sá til þess að halda muninum í 20 stigum. Stuttu síðar kom Hannes Ingi Másson inná hjá Stólunum og hann gerði sér lítið fyrir og setti 15 stig á síðustu 5-6 mínútum leiksins og þar af þrjár 3ja stiga körfur. Skagamenn áttu því ekki roð í Stólana í fjórða leikhluta og lokatölur 93-122.

Darrell Flake var stigahæstur Tindastólsmanna með 26 stig og 11 fráköst og var traustur út í gegn en meira mæddi á honum en oft áður þar sem Helgi Rafn kom lítið við sögu, hóf leikinn en varð snemma frá að hverfa. Proctor gerði 23 stig en unglingarnir Pétur, Viðar Ágústs, Ingvi Rafn og Hannes Ingi áttu skínandi leik.

Næsti leikur Tindastóls er hér heima gegn Vængjum Júpíters 28. febrúar en síðan lýkur deildarkeppninni með tveimur hörkuleikjum; fyrst fara strákarnir á Akureyri og spila við lið Þórs 7. mars og loks er heimleikur gegn Hetti frá Egilsstöðum þann 14. mars.

Stig Tindastóls: Flake 26, Pétur 24, Proctor 23, Hannes Ingi 15, Ingvi Rafn 12, Viðar 12, Helgi Margeirs 6 og Friðrik Stéfans og Sigurður Páll 2 hvor.

Frásögn byggð á leikskýrslu frá KKÍ.

Fleiri fréttir