Tindastólsmenn kjöldregnir í fyrri hálfleik í Keflavík
Tindastóll spilaði annan leik sinn í Iceland Express-deildinni þetta tímabilið í Keflavík í gærkvöldi. Ekki hafðist sigur og skipti þá kannski mestu máli að Keflvíkingar fengu beinan aðgang að körfu Stólanna í fyrsta leikhluta og kláruðu þá nánast leikinn. Í síðari hálfleik bitu okkar menn betur frá sér en það var ekki nóg og sigri Keflvíkinga í raun aldrei ógnað. Lokatölur 87-78.
Keflvikingar náðu yfirhöndinni strax í byrjun og voru yfir frá fyrstu til síðustu mínútu í leiknum. Varnarleikur Tindastóls var ekki til staðar í fyrsta leikhluta og gengu heimamenn á lagið og gerðu 36 stig gegn 19 stigum Tindastóls. Leikar jöfnuðust nokkuð í öðrum leikhluta en að fyrri hálfleik loknum var 23 stiga munur á liðunum og heldur á brattan að sækja fyrir gestina. Staðan 58-35.
Varnarleikur Tindastóls var til fyrirmyndar í síðari hálfleik en kannski hefur spilað inní að Keflvíkingar hafi leift sér að vera værukærir, enda með sterka stöðu. Stólarnir gerðu sitt besta til að hægja á leiknum en það líkar Keflvíkingum jafnan illa. Þriðji leikhluti vannst með 10 stiga mun og heimamenn gerðu aðeins 10 stig í leikhlutanum. Í fjórða leikhluta þurfti allt að falla með Stólunum til að þeir gætu velgt Keflvíkingum undir uggum, sérstaklega hefði verið efnilegt ef 3ja stiga skot hefðu ratað rétta leið en því miður var miðið ekki í lagi hjá Tindastólsmönnum, aðeins 4 þristar í 17 tilraunum rötuðu rétta leið og það er ekki nóg. Engu að síður höfðu Stólarnir betur í síðasta fjórðungi, 19-23, og 9 stiga tap því staðreynd.
Maurice Miller (19 stig), Trey Hampton (19 stig/11 fráköst) og Svavar Birgisson (17 stig/8 fráköst) voru atkvæðamestir í liði Tindastóls. Næsti leikur er gegn Fjölni hér heima nú á fimmtudaginn og þá væri gott að næla í 2 stig.
Nánar má lesa um leikinn á Tindastóll.is >
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá leik Tindastóls og Stjörnunnar sem fram fór sl. föstudag.