Tindastólsmenn komnir í toppbaráttuna í 1. deild
Tindastóll og Þróttur Reykjavík áttust við í 1. deild karla í fótbolta á Sauðárkróksvelli í kvöld og leikurinn mikilvægur báðum liðum. Með sigri gátu Stólarnir lyft sér örlítið upp fyrir liðin í fallbaráttunni og í raun í toppbaráttu deildarinnar. Sú varð raunin, Tindastólsmenn sýndu góðan leik og sigruðu örugglega 3-0 og eru nú aðeins fimm stigum frá toppliðunum tveimur en engu að síður í áttunda sæti að 14 umferðum loknum.
Lið Tindastóls lék undan norðanvindi í fyrri hálfleik en jafnræði var með liðunum fyrsta hálftímann en gestirnir fengu þó álitlegri færi án þess að ná að trufla verulega Sigurð Hrannar Björnsson markmann sem stóð vaktina í fjarveru Seb Furness. Í vörn Stólanna vantaði Björn Anton sem fékk að skoða rauða spjaldið í sigurleik gegn Völsungum um síðustu helgi. Stólarnir höfðu yfirhöndina síðasta stundarfjórðung fyrri hálfleiks en þrátt fyrir ágæta pressu höfðu þeir ekki erindi sem erfiði. Staðan 0-0 í hálfleik og nú lægði vindinn.
Tindastólsmenn spiluðu frábærlega í síðari hálfleik og tóku forystuna á 50. mínútu með glæsimarki Rodrigo Morin en kappinn lagði boltann efst í hægra hornið með þrumuskoti af um 25 metra færi. Stólarnir spiluðu boltanum vel og Þróttarar áttu ekki breik - Sigurður Hrannar í marki Tindastóls hefði allt eins getað mætt í sparifötunum til leiks í síðari hálfleik. Á 63. mínútu bætti Jordan A. Bronco við öðru marki og enn var um þrumuskot utan teigs að ræða, aftur ofarlega í hægra hornið. Mótlætið fór í taugar gestanna sem voru jafnan skrefinu á eftir heimamönnum og leiðinda brot litu dagsins ljós. Arnþór Ari Atlason nældi í tvö gul á 12 mínútna kafla og eðlilega sendur í sturtu eftir það seinna. Eftir þetta voru yfirburðir Stólanna algjörir. Þriðja markið kom á 82. mínútu eftir að heimamenn rústuðu vörn Þróttara með glæsilegu spili og Chris Tsonis lagði boltann í markið af stuttu færi. Þrátt fyrir nokkra ágæta möguleika tókst Tindastólsmönnum ekki að bæta við mörkum og lokatölur því 3-0.
Leikmenn Tindastóls stóðu fyrir sínu í kvöld en Atli og Morin voru flottir á miðjunni. Þá var Tsonis sterkur frammi og Bronco sýndi fína takta en fór meiddur af velli skömmu eftir að hanna skoraði. Þá voru Eddi, Loftur, Ingvi Hrannar og Fannar öruggir í vörninni.
Að 14 umferðum liðnum eru Stólarnir með 20 stig og í áttunda sæti. Lið Selfoss er með 17 stig, KF og Þróttur með 14 og lið Völsungs með 2 stig. Næstu tveir leikir Tindastóls eru á heimavelli, fyrst gegn Grindavík 8. ágúst og síðan gegn Selfyssingum 16. ágúst.