Tindastólsmönnum spáð 10. sæti í Iceland Express-deildinni

Keppni í Iceland Express-deildinni í körfubolta hefst annað kvöld. Lið Tindastóls spilar fyrsta leik sinn föstudagskvöldið 14. október en þá kemur Stjarnan í heimsókn á stífbónað og glænýtt Síkisparkettið. Árleg spá forráðamanna, fyrirliða og þjálfara var kunngerð í gær en þar var KR spáð sigri í Iceland Express-deild karla.

Ekki voru þessir herrar bjartsýnir fyrir hönd Tindastóls en samkvæmt spánni verða Stólarnir í 10. sæti í deildinni en Njarðvíkingum og Val er spáð falli. Mótherjum Tindastóls í fyrstu umferð, Stjörnunni, er aftur á móti spáð góðu gengi eða 3. sæti.

Morgunblaðið er aftur á móti með körfuboltasérfræðinginn Kristinn Friðriksson, fyrrum leikmann og þjálfara Tindastóls, á sínum snærum. Í Mogganum í morgun kemur fram að Kiddi er bjartsýnni á árangur Stólanna en hann spáir þeim áttunda sæti í deildinni. Hann segir miklu skipta að útlendingarnir í liði Tindastóls verði með góða dreifbýlisaðlögunarhæfni en veikleiki liðsins sé lítil breidd í hópnum.

Spáin er á þessa leið:
1. KR 395
2. Grindavík 374
3. Stjarnan 373
4. Snæfell 328
5. Keflavík 293
6. ÍR 244
7. Þór Þ 169
8. Haukar 149
9. Fjölnir 145
10. Tindastóll 136
11. Njarðvík 134
12. Valur 71

Fleiri fréttir