Titilvörn Tindastóls í Lengjubikarnum hefst í kvöld

Í kvöld hefur Tindastóll titilvörn sína í Lengjubikarnum er lið Grindavíkur kemur í heimsókn í Síkið og hefst leikurinn klukkan 19:15. Að sögn Bárðar Eyþórssonar er mikil tilhlökkun í liðinu enda alvaran að byrja. Bárður segir að ágætlega hafi gengið á undirbúningstímabilinu og flestir leikmenn séu í fínu standi, einn er þó puttabrotinn og leikur ekki í kvöld.

Hann segir að þó alvara sé í þessari keppni er samt alltaf litið á Lengjubikarinn sem góða æfingaleiki fyrir komandi tímabil.
-Við erum brattir og mikil tilhlökkun hjá okkur og ég hvet alla til að koma í íþróttahúsið í kvöld og styðja strákana.

Fleiri fréttir