Tíu ungmenni af NLV í úrtaks- og æfingahóp KKÍ

Þjálfarar yngri landsliða KKÍ hafa valið úrtaks- og æfingahópa sína sem munu taka þátt í æfingum í kringum jólin. Þeirra á meðal eru tíu ungmenni úr Tindastól á Sauðárkróki og Kormáki á Hvammstanga, en þaðan hafa eftirtaldir leikmenn verið boðaðir á æfingar:

U15 stúlkna: Hafdís Lind Sigurjónsdóttir, Tindastól, Ásdís Helga Másdóttir, Kormáki og Dagbjört Dögg Karlsdóttir, KR/Kormáki

U15 drengja: Örvar Pálmi Örvarsson, Tindastól

U16 stúlkna: Bríet Sigurðardóttir, Tindastól, Jóna María Eiríksdóttir,Tindastól, Linda Þ Róbertsdóttir, Tindastól og Valdís Óladóttir, Tindastól

U16 drengja: Pálmi Þórsson, Tindastól

U18 karla: Pétur Rúnar Birgisson, Tindastól

Fleiri fréttir