Tjarnartölt á Gauksmýri
Hestamannafélagið Þytur og Sveitasetrið Gauksmýri heldur sameiginlega ísmót á Gauksmýrartjörn næstkomandi sunnudag, 22. janúar kl. 14. Ef færi leyfir ekki að halda mótið á Gauksmýrartjörn þá mun mótið verða flutt á völlinn á Gauksmýri.
„Allir að mæta og taka þátt í fyrsta móti ársins og hafa gaman saman,“ segir á heimasíðu Hestamannafélagsins Þyts.
Keppt verður í tölti í 3 flokkum:
- 1.flokki
- 2.flokki
- Barna og unglingaflokki.
5 keppendur í úrslit i öllum flokkum. Hægt verður að koma hestum í hús á Gauksmýri á meðan húsrúm leyfir.
Skráning þyrfti að berast fyrir föstudaginn 20. janúar en hægt að hafa til sunnudagsmorguns. Skráningin fer fram hjá Jóhanni á netfangið jalberts@gauksmyri.is eða Kolbrúnu Stellu á netfangið kolbruni@simnet.is. Engin skráningargjöld. Nánari upplýsingar hjá Jóa í síma 869 7992.
Veitingasala verður í veitingasalnum á Gauksmýri. Ef fella þarf mótið niður birtist það á heimsíðu Þyts á sunnudagsmorgun.