Tjón vegna óveðurs
Austanáttin gerði mikinn óskunda í Blönduhlíð og Hegranesi í fyrrinótt, eins og fram kom í frétt Feykis í gær, og hafa nokkrar tilkynningar um tjón borist til tryggingafélaganna vegna þessa.
Rúður brotnuðu í óveðrinu. Mynd: Haraldur Smári Haraldsson.
Þak lyftist af fjárhúsi á bænum Keflavík í Hegranesi og gluggar fuku upp á fjósinu í Kúskerpi í Blönduhlíð og varð við það tjón á sjálfvirkum opnurum og mælikerfi þeim tengdum. Þá bárust tilkynningar um brotnar rúður á fleiri bæjum.
Samkvæmt VÍS á Sauðárkróki varð þó nokkuð tjón af veðrinu en það hefur þó oft verið verra að sögn starfsmanns. Engin tilkynning barst til lögreglu og að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar lögreglustjóra var nóttin róleg hjá þeim þrátt fyrir veðurhaminn.
Sömu sögu er að segja af Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð. Engin aðstoðarbeiðni barst til þeirra, að minnsta kosti ekki formleg samkvæmt Þorsteini Guðmundssyni formanni björgunarsveitarinnar. Margir meðlimir björgunarsveitarinnar búa á bæjum á þessu svæði og hafa sjálfsagt einhverjir þeirra staðið í ströngu þessa nótt en algengt er að nágrannar hjálpist að þegar þörf er á. Nokkrir bílar sátu fastir upp á Öxnadalsheiði en óskuðu ekki eftir aðstoð, heldur kusu að bíða eftir Vegagerðinni.
Meðfylgjandi eru myndir frá Haraldi Smára Haraldssyni í Hjarðarhaga í Blönduhlíð en Feykir greindi frá óförum hans vegna veðursins í gær.