Tölthorninu hampað í sjötta sinn

Eins og sagt var frá á vefnum um helgina áttu Skagfirðingurinn Jóhann Skúlason og Hnokki frá Fellskoti einstaka töltsýningu í forkeppni á heimsleikum íslenska hestsins í Berlín. Fæstir hafa því líklega búist við að sýningin yrði toppuð í úrslitakeppninni en sú var þó raunin og vann Jóhann hinn eftirsótta verðlaunagrip tölthornið í sjötta sinn á átta árum, sem er einstakur árangur.

Jóhann og Hnokki hlutu einkunnina 9,61 og þar af voru fjórar tíur fyrir yfirferðar tölt. Miklu lofsorði var lokið á árangur Jóhanns og í Morgunblaðinu í dag er m.a. haft eftir fyrrverandi liðsstjóra íslenska landsliðsins, Einari Öder Magnússyni, að sýning Jóhanns í úrslitunum sé sönn list, reiðlist.Segir hann styrkleika Jóhanns felast í því að hann hafai alla hluti í lagi og hvergi sé veikan hlekk að finna í undirbúningi og sýningu.

Sjálfur segist Jóhann í samtali við Morgunblaðið hafa mikið keppnisskap og setja mikla pressu á sjálfan sig og reyna að gíra sig upp í keppni. Hann segist jafnframt eiga Einari Öder mikið að þakka og hafa notið góðrar handleiðslu frá honum þegar hann keppti á sínu fyrsta heimsmeistaramóti árið 1999.

Haft er eftir Jóhanni að Hnokki fari ekki á fleiri heimsmeistaramót og er hann nú farinn að svipast um eftir nýjum töltara til keppni.

Í heildina kom íslenska iiðið heim með gullverðlaun þriggja heimsmeistara í hestaíþróttum og tvö gull í flokki ungmenna. Ísland hlaut auk þess liðabikarinn fyrir besta árangur landsliðs.

Fleiri fréttir