Tónleikar á lummudögum
Tónleikar til heiðurs Erlu Þorsteinsdóttur verða haldnir laugardaginn 29. júní nk. í Bifröst á Sauðárkrók.
Erla Þorsteinsdóttir fæddist á Sauðárkróki 22 janúar 1933 og varð þvi 80 ára fyrr á árinu. Lummudagar á Króknum og Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm ásamt hljómsveit halda afmælistónleika henni til heiðurs laugardagskvöldið 29 júní nk. og hefjast þeir kl 21. Tónleikarnir verða í Bifröst á Sauðárkrók. Miðaverð er 1500 kr.
Fluttar verða helstu dægurlagaperlurnar sem Erla söng. Lög eins og Heimþrá, Draumur fangans, Þrek og tár og fleiri. Hreindís og hljómsveit hennar hafa haldið yfir 20 tónleika með lögunum hennar Erlu vítt og breytt um landið og nú er kominn tími á heimabæ Erlu. Hægt er að hringja i síma 866-0114 og tryggja sér miða núna. Eða farið inn á midi.is og keypt hann þar.
Hreindís Ylva og hljómsveit hennar verða einnig með tónleika á Græna Hattinum á Akureyri fimmtudagskvöldið 27. júní og hefjast þeir tónleikar einnig kl 21.