Tónleikar Áhafnarinnar á Húna II skiluðu miklu til Skagfirðingasveitar

Áhöfnin á Húna II hélt tónleika á Sauðárkrókshöfn sl. fimmtudagskvöld, en hana skipuðu Guðni, Addi, Lára, Mugison, Jónas og Ómar.

Feykir hafði samband við formann Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar, Harald Ingólfsson og söfnuðust rúmlega 1,2 milljón þetta kvöld. Enn á eftir að taka saman heildartöluna sem rennur beint til Skagfirðingasveitar, en kostnaður við uppihald áhafnarinnar og annann kostnað á eftir að draga frá.

Björgunarsveitin Skagfirðingasveit vill koma á framfæri sértöku þakklæti til Skagfirðinga og gestum sem mættu á tónleikana, áhafnarinnar á Húna II og sveitastjórnarinnar fyrir stuðninginn.

Fleiri fréttir