Trausti fyrsti Skagfirðingurinn á ÓL?

Þátttaka Sauðkrækingsins Sævars Birgissonar í vetrarólympíuleikunum í Sochi í Rússlandi hefur vakið verðskuldaða athygli. Sævar hafnaði í 72. sæti í sprettgöngu og 74. sæti í 15 km göngu með hefðbundinni aðferð. Þess má til gamans geta að fyrir 38 árum keppti annar Skagfirðingur, Trausti Sveinsson á Bjarnagili í Fljótum, í skíðagöngu á Ólympíuleikum.

Trausti á Bjarnagili var ein af helstu skíðakempum landsins á árum áður. Hann keppti fyrst og fremst í göngu og var Íslandsmeistari að minnsta kosti 10 sinnum. Ólympíuleikarnir sem Trausti keppti a voru haldnir í Innsbruck í Austurríki árið 1976. "Það var sannarlega upplifelsi, en annars er það ekkert skrítið að maður skuli hafa farið út í skíðagöngu, því ég er alinn upp við það. Pabbi minn var mikill skíðagarpur, sigraði t.d. í fyrsta skíðamóti Ungmennafélags Fljótamanna árið 1920. Vagga skíðaíþrótta á Íslandi er einmitt hérna í Fljótunum. Fyrsta skíðamótið var haldið hér árið 1905, í Barðshyrnunni, sagði Trausti í viðtali við Morgunblaðið þann 1. maí 1994.

Feyki er ekki kunnugt um þátttöku fleiri Skagfirðinga en þeirra Sævars og Trausta í Ólympíuleikum, en gaman væri að fá ábendingar um ef að svo er.

Fleiri fréttir