Trésmíðanemar á Tyrfingsstöðum
feykir.is
Skagafjörður
20.09.2013
kl. 09.39
Í vikunni fékk fyrsti hópur nemenda í húsasmíðum í FNV að kynnast hvernig best er að haga timburviðgerðum á gömlum húsum. Fór hópurinn að Tyrfingsstöðum á Kjálka í Skagafirði og kynnti sér viðgerðir á framhúsinu þar, sem ku vera kjörinn vettvangur fyrir slíka kennslu.
Kennari hópsins er Björn Björnsson, trésmíðameistari. Um er að ræða samstarfsverkefni nokkurra aðila, en Byggðasafnið, Fornverkaskólinn og Tyrfingsstaðabændur útvega farartæki, fæði, efni og aðstöðu, eins og fram kemur á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga.