Tvær matskeiðar af volgu lýsi á hverjum degi til 12 ára aldurs - Elsti núlifandi Skagfirðingurinn

Bína á afmælisdaginn sinn ásamt barnabarni sínu og nöfnu, Jakobínu Ragnhildi Valgarðsdóttur. AÐSENDAR MYNDIR.
Bína á afmælisdaginn sinn ásamt barnabarni sínu og nöfnu, Jakobínu Ragnhildi Valgarðsdóttur. AÐSENDAR MYNDIR.

Jakobína Ragnhildur Valdimarsdóttir varð 99 ára gömul þann 2. ágúst síðastliðinn. Samkvæmt heimildum Feykis er hún elsti núlifandi Skagfirðingurinn. Bína, eins og hún er jafnan kölluð, féllst á að svara nokkrum spurningum frá Feyki.

Bína er næst yngst af níu systkinum. Foreldrar þeirra voru Valdimar Jónsson og Guðrún Ólafía Frímannsdóttir á Sauðárkróki. Guðrún lést hins vegar úr berklum þegar Bína var eins árs og var hún send í fóstur til Maríusar Pálssonar og Jakobínu Jóhannsdóttur.

Maki Bínu var Valgarður Björnsson, Valli, en hann lést árið 2000. Saman eignuðust þau fimm börn, fjögur þeirra komust á legg en næst elsta dóttir þeirra lést 3ja ára vegna hjartagalla. Í dag á Bína 66 afkomendur.

Heilsa Bínu er nokkuð góð. Heyrnin er þó aðeins farin að slappast en sjónin er upp á tíu. Hún býr ennþá ein í tveggja hæða húsi á Skagfirðingabrautinni og sér að mestu um sig sjálf þó að unga fólkið í kringum hana rétti henni hjálparhönd af og til við ýmsa hluti. Er hún þeim mjög þakklát fyrir það.

Bína og Valli á góðri stundu.Bína segist ekki sjá mikinn mun á unga fólkinu í dag og þegar hún var ung. Í dag tíðkast þó ekki að konur séu heimavinnandi og að karlarnir sjái um að framfleyta fjölskyldunni en þannig var það í hennar tilfelli. Hún vann aldrei utan heimilisins eftir að hún gifti sig og eignaðist börn. Fram að því hafði hún verið í síld á sumrin. Henni finnst fólk verða langlífara í dag en áður og algengara sé að fólk nái 100 ára aldri og yfir. Þegar hún var ung hafi fólk um sjötugt verið eldgamalt þó það sé fólk á besta aldri í dag.

Ástandið í heiminum í dag finnst henni hræðilega sorglegt. Hún segist ekki muna eftir að hafa upplifað svona tíma áður. Henni finnst Þórólfur, Víðir og Alma hafa unnið mjög vel að þessu og segir að við getum ekki annað en verið ánægð með þeirra störf, dugnað og þolinmæðina í þeim. Við séum mun betur stödd heldur en margar aðrar þjóðir.

Langlífinu vill hún þakka móður sinni sem var dugleg að gefa henni lýsi, 2 matskeiðar á hverjum degi þar til hún varð tólf ára. Þá sagði hún stopp og lét nægja að taka eina matskeið upp frá því. Bína minnist þessara stunda með hryllingi því lýsið hafi verið volgt þar sem það var geymt á borði bak við hurð.

Börn Bínu og Valla; Sverrir, Mæsa, Kári og Valli.Feykir sendi Bínu síðbúnar afmælis- og árnaðaróskir og vonar að hún hafi átt góðan afmælisdag.

/SHV

 

 

 

Fleiri fréttir