Tveir Lómar fastir í neti við ós Austari Héraðsvatna

Í morgun fékk Þorsteinn Sæmundsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands tilkynningu um að tveir Lómar væru fastir í neti við ós Austari Héraðsvatna í Skagafirði.

Þegar komið var á staðinn hafði einn fullorðinn fugl og einn ungi fest sig rækilega í silunganeti. Giftusamlega tókst að skera fuglana úr netinu og virtust þeir furðu vel á sig komnir þrátt fyrir hremmingarnar. Allt of algengt er að fuglar festist í netum og eru þeir sem leggja net góðfúslega beðnir um að fylgjast vel með hvort fuglar hafi fest í netum þeirra sér í lagi þar sem mikið er um unga núna.

Fleiri fréttir