Tveir Skagfirðingar sæmdir riddarakrossi á Bessastöðum í dag

Skagfirðingarnir Sigurður Hansen frá Kringlumýri og Magnús Pétursson ríkissáttasemjari og fyrrverandi ráðuneytisstjóri frá Vindheimum voru í dag sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

 

Sigurður fékk riddarakrossinn fyrir framlag hans til kynningar á sögu og arfleifð Sturlungaaldar og Magnús fyrir störf í opinbera þágu.

 

Alls voru ellefu sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeir eru:hopmynd2

  1. Dýrfinna H. K. Sigurjónsdóttir ljósmóðir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi heilsugæslu og umönnunar
  2. Herdís Storgaard hjúkrunarfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjandastörf að slysaforvörnum barna
  3. Inga Þórsdóttir prófessor og forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til vísinda og rannsókna
  4. Magnús Pétursson ríkissáttasemjari og fyrrverandi ráðuneytisstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu
  5. Páll Einarsson prófessor í jarðeðlisfræði, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir og fræðslu á sviði íslenskra jarðvísinda
  6. Páll Guðmundsson myndlistarmaður, Húsafelli, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar
  7. Sigrún Huld Hrafnsdóttir ólympíumethafi fatlaðra og myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir afrek og framgöngu á vettvangi íþrótta fatlaðra
  8. Sigurður Halldórsson héraðslæknir, Kópaskeri, riddarakross fyrir læknisþjónustu á landsbyggðinni
  9. Sigurður Hansen bóndi, Kringlumýri í Skagafirði, riddarakross fyrir framlag til kynningar á sögu og arfleifð Sturlungaaldar
  10. Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar og bókmennta
  11. 11.Þorvaldur Jóhannsson fyrrverandi bæjarstjóri og skólastjóri, Seyðisfirði, riddarakross fyrir framlag til mennta og framfara í heimabyggð

 

Fleiri fréttir