Tvenn verðlaun til Skagfirðinga

Eins og grein var frá á vef Tindastóls í gær fór aðalhluti meistaramóts Íslands í frjálsíþróttum fram á Þórsvelli á Akureyri um síðustu helgi. Keppendur voru um 150, þar af 5 frá UMSS. Tveir keppendanna frá UMSS unnu til verðlauna á mótinu.

Björn Margeirsson varð í 2. sæti í 1500m hlaupi á 4:02,04mín.
Jóhann Björn Sigurbjörnsson varð í 3. sæti í 100m hlaupi á 11,09sek.

Aðrir Skagfirðingar stóðu sig einnig vel.

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir varð í 5. sæti í 100m grindahlaupi og hástökki.

Sveinbjörn Óli Svavarsson varð í 5. sæti í langstökki.

Daníel Þórarinsson varð í 6. sæti í 200m og 400m hlaupum.

Í heildarstigakeppni mótsins sigraði lið ÍR með 37.031 stig, FH varð í 2. sæti með 27.321 stig og UFA í 3. sæti með 20.888 stig.  Líð UMSS varð í 8. sæti af 12 liðum, með 4.581 stig.

Fleiri fréttir